Stafræn mappa húsfélagsins.
Íbúar, fundargerðir og reikningar — á einum stað sem fylgir húsinu, ekki stjórninni.
Eiginleikar
Einfalt. En allt sem þarf.
Fundir
Þú boðar fund. Svörin koma sjálfkrafa.
Búðu til fund, veldu dagsetningu, og sendu. Íbúar svara beint úr tölvupóstinum — engin app, ekkert lykilorð.
Atkvæðagreiðslur
Leggðu fram tillögu. Fáðu atkvæði.
Íbúar kjósa beint úr póstinum. Þú sérð niðurstöðuna í rauntíma. Engin handvirk talning.
Tillaga um viðhald á þaki samþykkt með 89% atkvæða. Framkvæmdir hefjast í maí.
Fjármál
Allir sjá hvað kostar hvað.
Gjaldkeri skráir tekjur og útgjöld. Allir sjá stöðuna. Enginn Excel.
Saga
Ekkert tapast. Allt á einum stað.
Fundargerðir, ákvarðanir og tímalínur. Þú finnur allt aftur, jafnvel eftir tvö ár.
Umsagnir
Formenn treysta Hallway.
“Fyrsti húsfundurinn með Hallway tók 40 mínútur í stað tveggja tíma. Dagskrá, mætingalisti, allt tilbúið.”
Katrín Björnsdóttir
Formaður, Ásvallagata 22
“Áður fékk ég svör frá kannski 3 af 18. Núna svara flestir. Beint úr emailinu, enginn app. Það breytir öllu.”
Ólafur Sigurðsson
Gjaldkeri, Hringbraut 14
“Ég fæ email, smelli á takka, búinn. Engin app til að hlaða niður, ekkert lykilorð. Alveg snilld.”
Jón Þórsson
Íbúi, Vesturgata 8
Algengar spurningar
Spurningar og svör.

Af hverju Hallway?
“Einn daginn barst mér reikningur sem ég skildi ekki. Framkvæmdir sem höfðu verið samþykktar — en kostnaðurinn var orðinn allt annar en rætt var um. Enginn vissi nákvæmlega hvað hafði verið gert, eða af hverju.”
Þá áttaði ég mig á vandamálinu: það vantaði ekki samþykki, heldur yfirsýn. Hallway varð til svo að allir íbúar geti séð hvað er að gerast, hvað kostar hvað, og hvað hefur verið ákveðið.
Sölvi Davíðsson
Stofnandi, Hallway
Næsti fundur á að vera betri.
Þú getur verið með allt á hreinu á tveimur mínútum. Frítt í 30 daga.