Hallway
Persónuvernd og vafrakökur.
Hér er stutt yfirlit yfir hvernig Hallway hugsar um gögn á opnu heimasíðunni og í beta notkun appsins.
Síðast uppfært 28. apríl 2026.
Stutta útgáfan
Við reynum að safna eins litlum gögnum og hægt er.
Á opnu heimasíðunni notum við Plausible til að sjá heimsóknir í heild, án tracking cookies.
Í innskráða appinu eru aðeins notuð gögn sem þarf til að reka húsfélagið, sýna rétta stöðu og halda utan um fundi, atkvæði og skjöl.
Vafrakökur
Opna heimasíðan notar ekki markaðskökur eða tracking cookies.
Við notum Plausible Analytics, sem er cookieless vefmæling. Hún hjálpar okkur að sjá t.d. fjölda heimsókna og hvaða síður eru skoðaðar, án þess að fylgja fólki á milli vefja.
Þess vegna birtum við ekki cookie popup fyrir analytics. Ef við bætum síðar við þjónustu sem setur óþarfa kökur, bætum við við skýru samþykki áður en slíkt er notað.
Gögn í Hallway appinu
Þegar húsfélag notar Hallway geta gögn innihaldið nöfn, netföng, íbúðir, fundi, atkvæði, skjöl og upplýsingar um hlutverk í stjórn.
Þessi gögn eru notuð til að sýna rétta stöðu, senda hlekki, skrá þátttöku og varðveita ákvarðanir húsfélagsins.
Aðgangur er takmarkaður eftir hlutverki og samhengi. Íbúi á ekki að sjá stjórnarupplýsingar sem hann á ekki að hafa aðgang að.
Tölvupóstur og boð
Hallway getur sent fundarboð, atkvæðahlekki, RSVP hlekki og áminningar í tölvupósti.
Þessir hlekkir eru ætlaðir viðkomandi aðila eða íbúð og eiga ekki að vera birtir opinberlega.
Öryggi
Við notum dulkóðaða tengingu og vinnum með þjónustur sem styðja örugga vistun og aðgangsstýringu.
Markmiðið er einfalt: gögn húsfélagsins eiga að vera aðgengileg réttum aðilum og ekki öðrum.
Hafðu samband
Ef þú vilt spyrja um gögn, aðgang eða vafrakökur geturðu sent okkur póst á hello@hallway.is.